Hagfræðingur og frumkvöðull með áhuga á tækni, viðskiptum og samfélagsmálum. Í dag starfa ég sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og sit í stjórn Háskólans í Reykjavík.
Ég er einnig stjórnarformaður Elvo, fyrirtækis sem ég stofnaði árið 2025 til að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að nýta gervigreind í þjónustu við viðskiptavini. Áður stofnaði ég Moodup, hugbúnaðarfyrirtæki sem eykur starfsánægju á vinnustöðum.
Þá stofnaði ég Frama, vefskóla með fjölbreyttu námsefni, þar sem ég sit í stjórn í dag; og starfræki loks Blaðbera, fréttalesara sem birtir fréttir helstu vefmiðla í rauntíma.
Ég skrifa um tækni, viðskipti, efnahags- og samfélagsmál - ýmist á íslensku eða ensku. Sjá skrif fyrir fleiri færslur.
Ég vil endilega heyra frá þér. Þú getur haft samband við mig hér: